Hér verður bloggað:)
Íþróttðalið
06.11.2006 21:25:10 / brynja87

ég er flutt...

www.123.is/brynjahuld 

hér er mig að finna ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 21:05:27 / brynja87

Lokapróf og hálskirtlataka

ég er að læra fyrir efnafræði 313 lokapróf.. og horfa á Opruh, ruglaða..

þegar ég var lítil, svona 8 ára, þá hélt ég að ef ég væri nógu mikið úti að leika í vindinum, gæti ég orðið eins og Pocahontas :lol:

svo kom í ljós að ég varð ekkert eins og hún..


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 22:41:06 / brynja87

Brynja Hrynja óheppna, dagurinn minn í dag

Í dag, er ég búin að lenda í endalausu magni af fáránlegum slysum, vona að þetta boði samt gæfu fyrir morgundaginn8)

Dagur byrjar á því að ég vakna 1,5klst of seint, s.s. kl.7:32 í stað 6:00, ég ætlaði að vakna svona snemma til að geta lesið einu sinni enn yfir glósur fyrir sag303 hlutapróf og lesa líka í efn313, átti að fara í þessi 2 próf í dag. :!:

Ég hjóla af stað í skólann, og er rétt að koma út götuna mína, þá er smá snjóþekja yfir götunni, sem ég hélt að væri ekki möguleiki þar sem það er búið að vera hlýtt síðustu daga og það er að koma MAÍ! ég renn til í beygjunni hérna yst í götunni en kemst uppeftir..

Dagurinn líður og ég er óslösuð, EN fer í próf um eittleitið, svo er ég að labba af bókasafninu og niður STEYPU stigann að stofu 10, felli mig einhvernveginn og dett niður síðustu 3 tröppurnar :^) 8| AULI, LOOSER! fyrsta flokks Brynja Hrynja hér á ferð, skell með hnjéskeljarnar í hart gólfið og ökklarnir skella á stigann, hávaði, sími í gólf, læti, SEM betur fer var enginn viðstaddur, nema jú Hildur kennari sér útum stofunna og lýtur á mig með svipinn "auli stattu í lappirnar" :)

ég hló að sjálfsögðu, ekki mátti neinn vita að ég hefði meitt mig;) en var soldið illt í hnjánum, reyndi samt að halda kúlinu8)

Svo núna áðan, kem ég með fartölvuna og hleðslutækið inn, sé svo að tölvan fer að verða batterílaus, skil ekkert í því þar sem hún er í hleðslu, s.s.í sambandi, sé að snúran er farin í sundur, brynja tekur upp snúruna, nær í skæri og rafmagnsgellan ákveður að laga snöggvast, EN gleymir einu mikilvægu atriði TAKA ÚR SAMBANDI, 5sekúndum seinna fær ég straum úr innstungunni og JÁ ég veit AULI get sagt ykkur að það var ógeð vont:( :cry:
hef fengið straum áður í Póls og var búin að gleyma þessum sting:!:

Ég tek úr samb. og laga snúruna, samt sem áður, enginn straumur á tölvuna, skil ekkert í þessu, auk þess var þráðlausa netið dottið út, tölvan batteríslaus svo ég slekk og pæli ekkert í því meir..

svo núna áðan skil ég ekkert í að það kviknar ekki ljós í stofunni, samt kveikt á sjónvarpinu, hmm, sprungin pera?
neiii, engin ljós á neðri hæðinni, og ekki í kjallaranum, ég hetja hætti mér niður til að athuga rafmagnstöfluna, þá hef ég áðan slegið út 4 rofa:S:$

ég slæ inn aftur og labba af stað upp, rek olnbogann í og hrindi niður eina óbrotna páskaegginu í húsinu og brýt það:!:

Þessi dagur er sko ekki búinn að vera minn dagur, en vona að þessi óheppni í dag boði heppni á morgun, þar sem ég er að fara að flytja fjármálaskýrslu NMÍ á sal á morgun, búin að kvíða ýkt fyrir því en þetta verður fjör 8)

sit núna í brjáluðu gamei, svo gott sem búin með gjaldkerafjármálin og tilbúin að klára veturinn 2005-2006 sem gjaldkeri Nmí:haha:

Góða nótt kæru lesendur og veri heppnin með ykkur;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 03:35:49 / brynja87

Gleðilegt sumar;)

Gleðilegt sumar allir saman:)

Ég er bjartsýn á sumarið 2006, sumardagurinn fyrsti var alveg hreint út sagt æðislegur:)

Vorum hér heima ég, elísa, thelma og guðrún, byrjuðum á því að ætla að fá okkur ís en enduðum á fernando's og á kosningaskrifstofurölt því guðrún agnes vill að verið verðum pólitískari;)
elduðum svo saman, spiluðum og létum eins og hálfvitar(sumar meira en aðrar) :lol: ekkert smá mikið fjör, góð byrjun á góðu sumri:D

Orð dagsins var tvímælalaust Ndeeeiij og Sína! eða eithvað álíka,-

Nú er ég komin út í bílskúr eftir annað stelpuhangs, ég eldaði síðbúin kvöldmat fyrir stúlkurnar og vonum að þær fái ekki salmónellu?! 8|
horfðum á einhverja voða flókna mynd, Suspect Zero og átum nammi og drukkum kók.. svo yfirgaf liðið mig og húsið í rúst:| :( :$ :) en það er læ.. vinnukonan mætir á morgun8)

Bíð ykkur lesendum mínum góða nótt og enn og aftur gleðilegt sumar:) ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 17:47:23 / brynja87

Til hammó með ammó;)

Það vill svo skemmtilega til að í dag og í gær áttu tveir frábærir strákar afmæli;)

Rökkvi Rafn systursonur minn, sem er by the way algjurt krútt, hann orðin heila tveggja ára:)

Og svo í dag á Davíð bróðir afmæli, hann orðinn þónokkuð eldri, 23.ára gamall, efast um að ég nái á hann svo vonandi lestu þetta Davíð:lol: 8)

Ekkert annað að frétta, jú áætluð suðurferð mín er útum þúfur, þar sem Andrea stjúpmamma fer ekki til pabba til þýskalands fyrr en fyrsta lagi eftir viku.. svo ekki fer ég langt

síðasti í páskafríi var í gær svo í dag byrjar heilbrigðin,, á leið í s-dan!


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 19:34:57 / brynja87

Gleðilega páska og takk fyrir djammið;)

Hæ allir og gleðilega páska:)

Takk fyrir helgina, eða síðustu 4-5 daga í djammi:)

Þetta var æðisleg helgi hreint út sagt, djamm, svefn, leti, skemmtileg böll, skemmtilegar vinkonur og skemmtilegir vinir, hellingur af fólki í bænum, smá sjónvarpsgláp, fjölskyldustemming og matarboð, í einu orði frábær blanda:) 

Á miðvikudagskvöldið var tekið smá djamm, byrjuðum nokkrar vinkonur að drekka heima hjá Thelmu Björk, þar var að sjálfsögðu stuð eins og alltaf:) svo var skundað á ball í Hnífsdal, ... ball með Dj.Buddy Love og Egill Beatmaster:lol:
Þar var ekki mjög margt um manninn en við stelpurnar skemmtum okkur ágætlega!;)

Fimmtudagur: Fermingarveisla og flutt í bílskúrinn!

Föstudagurinn var tekinn rólega að undanskilinni brettaferðinni okkar Thelmu sem heppnaðist svona líka með eindæmum vel, að undanskildnum kulda og lélegs skyggnis..En samt sem áður ógeðslega gaman, verður endurtekið vonandi áður en um yfirlýkur!
Um kvöldið var haldið á í svörtum fötum ball,-
sem var fjör fyrir utan slagsmálin fyrir utan ballið:(
skil ekki stráka að vera alltaf í slagsmálum..:evil:

Laugardagur var afslöppun og svo hófst undirbúningur fyrir Jet Black Joe ballið, sem var SNILLD:) þetta kvöld var frábært;) drykkja, djamm, dans og ýmisleg skemmtilegheit!8)

var vakin eftir of stuttan svefn á páskadag til að leita að páskaegginu með litla bróðir, hann komst í gegnum ratleikinn sem ég gerði fyrir hann þrátt fyrir að ég hafi gert hann þegar ég kom heim eftir í svörtum fötum ballið um nóttina:o

Páskadagskvöld var enn eitt djammið, sem byrjaði vel en endaði ekki of vel, var eitthvað voða illt í brjóstkassanum og vildi bara heim, svo í staðinn fyrir að þrauka á krúsinni(tónlistin var hræðileg)8|:$ þá fór ég bara heim í bílskúrinn:)

Já gleymdi að segja ykkur það, er flutt í dásamlega herbergið mitt í bílskúrinn, tók þá ákvörðun á fimmtudaginn að ég væri orðin fullorðin og ætlaði með rúmið mitt út;) þetta er algjur himnasending, privacy og kósýheit! Ekkert smá ánægð hérna úti:D;) á reyndar eftir að koma mér aðeins betur fyrir en þetta kemur á endanum:!:

Jæja er að fara að horfa á O.C., tók það upp í dag:D
Kv.Brynja Huld :)

P.s. gæti svo litið út að ég fari suður um helgina til Grindavíkur að "passa" um helgina, svo ég lofa engu með áframhaldandi blogg næstu daga:S :lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 22:09:55 / brynja87

Ísafjörður, rok og snjór..

SKO, ég er ein af þeim, sem er rosalega á móti því að segja að það sé vont veður í mínum heimabæ, því ísafjörður er jú besti bærinn;) en það verður að segjast að það er VONT veður, ég er að vona að það verði ekki skóli á morgun, vegna veðurs:D
Vona að það rætist hjá mér, er alltof löt til að fara út í þetta veður.. :S

En að öðru, ég var fyrir sunnan um síðustu helgi með fjölskyldunni, sem var rosalega fínt:)
Flaug suður á föstudagsmorguninn og afi sótti mig á flugvöllinn, svo fór ég og hitti Andreu og Elísabet og eyddi deginum með þeim, í leit að fermingarskóm og öðru, og loksins fundust þeir kl.18:04, við allar orðnar  þreyttar og pirraðar..
Ekki var mikið gert það kvöldið annað en hjálpað til við fermingarundirbúning.. :)

Ég vaknaði snemma á laugardeginum, við tók enn meiri fermingarundirbúningur, 32 klst í fermingu, húsið í rúst, eftir að taka niður sjónvarpsskáp, setja upp nýjan, mála herbergið hennar Elísabetar, baka, elda og heeellingur ógert.. 8|

Það var verslað, bakað, eldað, tekið til og hjálpað til..
En þegar fór að líða að kvöldinu var stefnan tekin á bíó í Reykjavík með mínum ástkæru eldri bræðrum og mágkonu8)
Sem væri ekki frásögu segjandi nema að við vorum smá sein af stað, vorum komin kannski 5-10 mín of sein í bíó og keyptum miða,- löbbuðum inní salinn og ALLT fullt.. LOL, við fram að kvarta, löbbuðum inní næsta sal, þar var eitthvað rugl í gangi.. en ágæt mynd þó..

Sunnudagur: Myndataka, Ferming, bið eftir veislu, Veisla=borða, horfa á elísabet opna pakka.. svo eitthvað að hanga með Davíð.. Svo sofnað eftir góðan dag, södd og sæl;)

Mánudagurinn fór í bara rugl, heimferð og slíkt..

Svo núna er ógeðslega kalt, mig langar ekki í skólann og ég ætla ekki í skólann;)

Bið að heilsa ykkur, ykkur sem nenntuð að lesa þessa færslu um ekki neitt.. :$ :o


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 18:17:18 / brynja87

P.S.

ákvað að skella inn könnunni ;) það voru 33 sem tóku þátt.. Ný könnun væntanleg!


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 18:12:35 / brynja87

Grindavík, ferming, snjór og klipping:)

Hæ hó allir saman:)

Ég er komin á Ísafjörð og búin að vera hér í heila 2 daga, og fer aftur til Grindavíkur eftir 2 daga;) því litla systir mín er að fermast á sunnudaginn!

Ég kom heim frá Reykjavík á sunnudaginn var, gekk útúr flugvélinni og ég get ekki sagt annað en að mér hafi verið brugðið, það var snjókoma, rok og kuldi! :evil:
ALLT öðruvísi veður en ég kom úr.. :$

Það var gaman í Grindavík en ég er ekki frá því að ég sé farin að sakna helganna á Ísafirði, þar sem ég er búin að vera í Grindavík síðustu tvær, og verð fyrir sunnan næstu tvær..
Það gekk ágætlega að passa Elísabet, Kolku og Natan Ævar, þau eru fjör;)

Jæja þá er ég búin að blogga, ætla að reyna að skrifa ritun um Louvre safnið á frönsku, svo ég nái nú FRA403 8|

En verð nú fyrst að klára að horfa á O.C., tók þáttinn upp því ég var í litun og klippingu, og er ekkert smá ánægð með árangurinn:D

Bið að heilsa ykkur dyggu blogglesendum :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 21:36:10 / brynja87

Jaháhá..

Jæja, það er frost á fróni á Ísafirði!:(

En það er alltílæ, þeim mun meiri ástæða til að vera heima að horfa sjónvarpið;)

Ekki er mikið að frétta, bara skóli, svefn, kuldi og meiri svefn:)

Ég fer til Grindavíkur að passa um helgina að passa litla bróðir minn:) hlakka geggjað til að hitta hann og litlu systir mína aftur! er reyndar að fara að passa þau bæði en það þarf ekki mikið að passa Elísabet þar sem hún er að fara að fermast..

Annars er skólinn langt kominn með að verða búinn, ekki nema einhverjir 18-19 skóladagar eftir, svo bara lokapróf:) Það styttist í Benidorm, sumarið og allt saman:)

Bið að heilsa ykkur öllum!:haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 23:30:24 / brynja87

Brynja @ Ísafjörður

ég er kominn heim á Ísafjörðinn... eftir skemmtilega helgi í Grindavík 8) ýmislegt brasað, gert og framkvæmt eða hvað maður nú segir..  

Strax farin að sakna allra þar en það var að sjálfsögðu fínt að koma heim og hitta alla hér:) mæta í skólann og svona.. alveg farin að sakna námsbókanna eða hitt þó haldiði!

En að öðru mun "skemmtilegra", pabbi minn og hans fjölskylda, s.s. hin fjölskyldan mín, þar sem ég er svo heppin að eiga tvær, ætlar að flytja til Cuxhaven í Þýskalandi.. :cry: því fylgir ýmislegt gott og ýmislegt ekki svo gott, en svona er lífið! Ég kom heim í morgun og ákvað að byrja að einbeita mér að þýskunni, og nú í kvöld er ég búin að pússla saman þessari líka fínustu setningu.. þið þýskunámsmenn getið kannski klórað ykkur frammúr þessu:

Ich habe eine Schmerz in meine Rücken aber Ich Werde still Sex haben bei dir ;)

endilega commentið og giskið, lausnin kemur í næstu færslu:!:

En jæja, nú kallar Passé Composé og Imparfait í frönsku á mig þar sem ég þarf að mæta í einhverskonar könnun í fyrramálið kl.8! 8|

Góða nótt í bili sjáumst og heyrumst!

P.s.Allir að kommenta :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 20:06:58 / brynja87

Grindavík ó Grindavík

Jahá, nú er maður staddur í vík Grindanna..

Kom keyrandi suður með Jóhönnu klippikonu og kærastanum hennar.. Mjög ágætur rúntur!

Var ekkert smá ánægð að koma suður, hef ekki komið hingað síðan í lok október eða byrjun nóvember.. var farin að sakna litlu systir, pabba, andreu og natans býsna mikið :(

Við systurnar erum búnar að gera ýmislegt skemmtilegt saman;) versla, rúnta, borða nammi, rúnta meira og versla meira og jú auðvitað heimsækja ömmu í Álfabergið:)

Í dag fór ég í fermingu hjá Gulla, sem er "skyldur" mér í stjúpmóður legginn.. þar hitti ég helling af fólki sem ég hef ekki hitt í alltof mörg ár 8| sem ég kem til með að hitta aftur um þar næstu helgi, því þá kem ég aftur suður í fermingu hjá Elísabet! ;) sem verður ekkert nema gaman, því þá verðum við systkina hópurinn meira og minna "sameinaður".. Voða fjör..

Jæja hef eiginlega ekkert að segja,- vonandi skemmtuð þið ykkar sem fóruð á Grímuball KFÍ í gær rosa vel:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 01:32:15 / brynja87

Afhverju?

Hér kemur mjög mikil pæling, ég er búin að horfa á tvær mjög átakanlegar mymdir í gærkvöldi og í dag, í gær horfði ég á mynd á stöð 1 sem hét Charlotte Gray, og fjallaði um samskipti þjóðverja við gyðinga á árunum 1939-1945, mig verkjaði í sálina yfir því hveru mikil mannvonska er til í heiminum, nasistar voru og eru mjög mjög vont fólk.. :cry: Svo í kvöld, þar sem ég var ein heima að passa Albert litla bróðir, horfði ég á myndina Crash, sem hlaut mörg óskarsverðlaun að ég held, þar er fjallað um kynþáttahatur, púff, ég hefði aldrei trúað því að fólk gæti verið svona vont.. :cry: þessi mynd, vááá, hún er svo góð, ég var með gæsahúð síðasta korterið, non-stop... Varð bara að segja nokkur orð um þetta, kynþáttahatarar, nasistar, sprengjumenn og vont fólk er rosa rosa vont.. :!: Og eins og titillinn á færslunni segir, "Afhverju?", afhverju getur fólk ekki bara verið vinir? svona eins og fólk af Afrískum uppruna, þjóðverjar(nasistar), gyðingar, asíubúar, kínverjar, íslendingar, ameríkanar, arabar, allir bara góðir vinir.. Því fólk eins og ég get ekki horft á fleiri myndir um hversu vont annað fólk getur verið við hitt fólkið.. Ég eiginlega skil þegar stelpurnar sem vinna ungfrú U.S.A. og þannig keppnir segja "All I want is World Peace.." því vitiði, það væri nú ágætt að hafa smá World Peace annað slagið.. Nú býð ég góða nótt.. :|

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 14:16:39 / brynja87

Er flugfélagið eitthvað að ruglast?!

Jæja góðir hálsar.. nú gerðist soldið fyndið.. :lol:

Ég fór í skólann í morgun kl.9 og fór veik heim uppúr 10.leitinu.. með hausverk, hósta og kaldan svita, ekki að það sé fyndið

en það fyndna er, ég kom heim sofnaði og dreymdi ýmislegt og ekkert..

Svo hringir síminn kl.13:42 og vekur mig af ljúfum blundi, símanúmerið á skjánum segir mér að þetta sé flugfélagið í reykjavíkinni að hringja í mig, ég svara og svona var símtalið:

Brynja: Halló?

Flugfélagsgella: Já, Brynja Huld?

Brynja(Ég): já..

Flugfélagsgella: ég er að hringja og tilkynna þér að það verður frestun á fluginu þínu þann 3.apríl frá rvk-ísfj. Flugið sem átti að vera kl.9 verður ekki fyrr en kl.10:15!

Brynja: Ha? hvers vegna, það er mjög óhentugt..

Flugfélagsgella: Vegna bilunar..

Brynja: HAH? hvernig geturu vitað fyrirfram um bilun eftir 3.vikur..:|

Flugfélagsgella: veitiggi, ég fékk bara úthringilista tíhí..(ræskir sig).. þú getur líka farið með seinni vél á sunnudeginum?

Brynja: nei það get ég ekki..

Flugfélagsgella: hmm, ég breyti þá engu hjá þér.. takk takk

Eftir er ég hinum megin á línunni, ÞOKKALEGA hissa og skil ekki hvernig þessi vitleysa á fram að ganga, og hringi á flugvöllinn á Ísafirði, þar sem eru menn/strákar sem hægt er að treysta í svona málum, ég tala við strák og spyr hann útí þetta, hann segist aldrei hafa heyrt þetta og ætlar að athuga þetta en segist jafnframt vera kjaftstopp..

þar endaði fyndna sagan mín:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.02.2006 03:39:41 / brynja87

The Rainy Day Women

God... var að ljúka við að horfa á uppáhaldsþáttinn minn af O.C., hann mun heita The Rainy Day Women, ekkert smá góður þáttur..

Þetta er þátturinn þar sem:

Sandy festist í rigningunni á hótelinu með Rebeccu.:evil:

Seth sefur 4klst á þremur nóttum.8|

Seth og Summer eru í sitthvoru lagi í sitthvoru húsi en samt að hlusta á sama lag, Boyz II Men-End Of The Road(totally sætt).:$

Lindsay flytur til Chigago(one step closer to Marissa and Ryan together). :lol:

Marissa er í geðveikt flottri Iisli Cropped Hoodie(hettupeysa).8)

Það rignir allan þáttinn.

Marissa segir mömmu sinni að hún hafi ákveðið að gerast lesbísk?!(one step backwards in dating Ryan).:evil:

Marissa flytur til Alex(lesbian)?!:evil:

EN sem betur fer, er hún ekki að fíla sig mikið.;)

Summer ætlar með Zach til Ítalíu.. EN góðir hlutir gerast hægt eins og vitur maður/strákur sagði mér eitt sinn, hún snýr við, fer til Seth, sem hengur neðan úr gervihnattadisk með Spidermangrímu, tosar grímuna niður og.. :!:

OG KYSSIR HANN.. *gæsahúð* ekkert lítið gaman.. ég var með gæsahúð svona síðustu 8 mínúturnar af þættinum, stanslausa.. mhhmmm.. ;)

Over and out.. næstu þættir bíða..


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4